ENGLISHEN
BLoGG

Brunavarnir á byggingarsvæðum

Eldvarnir eru mikilvægur þáttur í að tryggja öryggi í byggingarframkvæmdum. Þar sem eldfim efni eru til staðar er hætta á að eldur breiðist hratt út og geti fljótt orðið óviðráðanlegur ef ekki er brugðist fljótt við. Eldur sem brýst út á byggingarsvæði getur valdið manntjóni, eignatjóni og stöðvun framkvæmda. Í þessu bloggi er fjallað um brunavarnir í byggingarframkvæmdum og lagður fram listi yfir nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja brunavarnir.

Ábyrgð á öryggi

Byggingarsvæði eru vinnustaðir. Samkvæmt lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum (46/1980) ber atvinnurekandi ábyrgð á að gerð sé skrifleg áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað. Atvinnurekandi skal þar að auki sjá um að starfsfólk fái nauðsynlega kennslu og þjálfun í að framkvæma störf sín á öruggan hátt. Brunavarnir eru mikilvægur þáttur í því að tryggja öryggi.

Hætta á byggingarsvæðum

Eldhætta á byggingarsvæðum er oft mikil vegna notkunar eldfimra efna, þar á meðal tjörupappa, brennanlegra byggingarefna, leysiefna og úrgangsefna. Enn fremur eykur notkun rafsuðutækja, rafmagns- og hitunartækja enn frekar hættu á eldi. Meðal annarra þátta sem stuðla að aukinni hættu á byggingarsvæðum eru að um ófullgert húsnæði er að ræða (sérstaklega með tilliti til brunahólfunar og flóttaleiða), ónógur búnaður til brunavarna og ófullnægjandi þjálfun í öryggismálum.

Afleiðingar eldsvoða á byggingarstað geta verið gífurlegar, eins og nýleg dæmi sanna. Eldsvoði getur valdið manntjóni, miklu eignatjóni og stöðvun framkvæmda um langan tíma. Enn fremur getur áhrifa gætt í nærliggjandi umhverfi, sem leiðir til frekara fjárhagslegs og félagslegs tjóns.

Kröfur til byggingarsvæða

Til að tryggja brunavarnir á byggingarsvæðum er brýnt að fylgja eftirfarandi atriðum:

1.     Móta brunavarnaáætlun: Gera skal heildstæða brunavarnaáætlun og kynna hana öllum starfsmönnum og verktökum á byggingarstað. Í áætluninni skal lýsa hlutverki og ábyrgð alls starfsfólks ef eldur kemur uppog í henni skal gera grein fyrir verklagsreglum um rýmingu, ráðstöfunum til að koma í veg fyrir eld og samskiptaupplýsingum í neyðartilvikum.

2.     Framkvæma reglulegt mat á brunaáhættu: Framkvæma skal reglulegt brunaáhættumat til að greina hugsanlega hættu og gera ráðstafanir til að draga úr henni. Í því felst að bera kennsl á eldfim efni, búnað og vinnu sem getur skapað eldhættu, auk þess að tryggja viðeigandi geymslu og meðhöndlun efna.

3.     Tryggja góða umgengni á byggingarsvæðum: Gera skal viðeigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir uppsöfnun eldfimra efna, þar á meðal byggingarefna og úrgangsefna frá framkvæmdinni. Allt efni skal geymt á þar til gerðum svæðum og því fargað í samræmi við gildandi reglur.

4.     Tryggja eldvarnarbúnað: Hentugur eldvarnarbúnaður skal vera á staðnum og honum skal haldið við í góðu ástandi, þar með talin slökkvitæki, rafsuðutjöld eða afskermun vegna logavinnu og reykskynjarar eftir atvikum. Allt starfsfólk skal fá þjálfun í að nota búnaðinn og vita hvar hægt er að nálgast hann ef eldur kemur upp.

5.     Tryggja rafmagnsöryggi: Gera skal ráðstafanir varðandi rafmagnsöryggi sem tekur tillit til álags búnaðar, dreifingar rafmagns og réttrar notkunar og staðsetningar rafbúnaðar. Allur rafbúnaður þarf reglulega skoðun og viðhald.

6.     Takmarka hættu vegna heitrar vinnu: Heit vinna er t.d. vinna með gashitun, slípirokka og logsuðu, sem skapar sérstaka eldhættu. Sækja skal um leyfi til allrar heitrar vinnu samkvæmt sérstöku eyðublaði. Engin vinna skal fara fram ef loftræsing er ófullnægjandi eða nauðsynlegar varúðarráðstafanir eru ekki fyrir hendi. Eftir að heitri vinnu er lokið skal vera eftirlit á staðnum í a.m.k. 60 mínútur.

7.     Tryggja rétta geymslu eldfimra efna: Eldfim efni skulu geymd á tilgreindum svæðum fjarri eldhættu, sérstaklega í viðunandi fjarlægð frá heitri vinnu.

8.     Veita þjálfun í slysavörnum: Allt starfsfólk skal fá viðunandi þjálfun í slysavörnum, þar á meðal þjálfun í brunavörnum, áður en vinna hefst á byggingarsvæðinu. Regluleg þjálfun skal tryggja stöðugar og réttar varnir og stuðla að því að hugsanleg hætta sé greind tímanlega.

9.     Framkvæmd brunavarna: Fylgja skal eftir brunavörnum á byggingarsvæðum í samræmi við ofangreind atriði. Brunavarnir skulu vera hluti af öryggisstjórnunarkerfi verktaka.

Eldur á byggingartíma Hörpu [Mynd: RÚV]

Eins og fjölmörg dæmi sýna er ljóst að brunavarnir eru sérlega mikilvægar á byggingarsvæðum. Draga má úr hættunni á tjóni með því að uppfylla þá þætti sem fjallað er um hér að ofan, meðal annars með gerð ítarlegrar brunavarnaáætlunar, reglulegu brunaáhættumati, góðu skipulagi og hreinsun, brunavörnum byggingarsvæðis, slökkvibúnaði, rafmagnsöryggi, réttu verklagi við heita vinnu, öruggri geymslu eldfimra efna og þjálfun í notkun slökkvibúnaðar. Með því að framfylgja þessum þáttum geta stjórnendur á byggingarsvæðum tryggt öryggi starfsfólks síns, dregið úr hættunni á eldsvoða og komið í veg fyrir manntjón, eignatjón og stöðvun framkvæmda.

Í stuttu máli má segja að brunavarnir eiga alltaf að vera í forgangi á byggingarsvæðum. Með því að fylgja þessum leiðbeiningum geta stjórnendur byggingarframkvæmda dregið úr hættu á eldsvoða og tryggt öruggt vinnuumhverfi.

ÖRUGG verkfræðistofa aðstoðar við alla þætti öryggis byggingarframkvæmda, hvort sem um er að ræða brunavarnir, heilsu- og slysavarnir, rýmingar- og viðbragðsáætlanir eða heildstæð umhverfis- og öryggisstjórnunarkerfi. Hjá ÖRUGG starfa viðurkenndir sérfræðingar með margra áratuga reynslu við gerð áætlunar um öryggi og heilbrigði á vinnustöðum. ÖRUGG aðstoðar fyrirtæki við að uppfylla kröfur löggjafar um vinnuvernd með gerð forvarnaáætlunar, öryggis- og heilbrigðisáætlunar og áhættumats starfa, auk námskeiðahalds og nauðsynlegra æfinga.

[Myndir: Visir.is og Christian Bragi]