Hluti nýs vindmyllugarðs Landsvirkjunar í Vaðölduveri hefur nú verið gangsettur. Vegna stærðar og flækjustigs verkefnisins var lögð rík áhersla á heildstæða áhættustýringu þess.
Vaðölduver verður stærsta fjárfesting í vindorku hér á landi og fylgja því áskoranir sem ekki hafa sést áður í íslenskum orkuverkefnum. Nú hafa verið teknar í notkun 14 vindmyllur, en 14 til viðbótar verða komnar í fullan rekstur fyrir lok árs 2027. Til að tryggja að verkefnið gangi eftir áætlun, bæði hvað varðar tíma, kostnað og öryggi, var kallað eftir sérþekkingu ÖRUGG verkfræðistofu á sviði áhættugreiningar verkefna.
Almenn áhættustjórnun verkefna snýst ekki eingöngu um að bregðast við vandamálum þegar þau koma upp, heldur er hún fyrirbyggjandi ferli sem fer í gegnum allan líftíma verkefnisins. Markmiðið er að:
- Greina óvissu: Finna þá þætti sem gætu haft neikvæð áhrif á framvindu verkefnisins, tíma, gæði eða öryggi.
- Meta áhrif: Greina hversu líklegt er að atburður eigi sér stað og hvaða afleiðingar hann hefur á kostnað, tímaáætlun eða gæði.
- Móta mótvægisaðgerðir: Finna og útfæra leiðir til að draga úr líkum á áhættu eða lágmarka tjón ef hún raungerist.
Vinnustofur og heildstæð greining
Lykilatriði í svona stórum verkefnum að greina áhætturnar snemma og leita leiða til þess að lágmarka þær áður en framkvæmdir hefjast. Með því að leiða saman breiðan fjölda sérfræðinga í vinnustofum náðist sameiginlegur skilningur á áskorununum. Flest allar deildir Landsvirkjunar koma að undirbúningi og/eða framkvæmd verkefnisins á einhvern hátt sem veldur því að áskorun er að ná yfirsýn yfir alla heildar myndina. Sérfræðingar ÖRUGG stýrðu vinnustofum þar sem farið var yfir alla mögulega áhættuþætti með mismunandi teymum innan Landsvirkjunar. Með kerfisbundinni nálgun voru veikleikar greindir á öllum stigum verkefnisins, allt frá hönnun og útboðum til uppsetningar og reksturs.
Fyrirbyggjandi nálgun skilar árangri
Með því að nýta aðferðafræði ÖRUGG við áhættustýringu hefur Landsvirkjun fengið heildar mynd af þeim áhættuþáttum sem gætu tafið verkefnið eða aukið kostnað. Í framhaldi af áhættugreiningum og áhættumati eru lagðar fram viðeigandi mótvægis aðgerðir til áhættuminnkunar, sem setur verkefnastjórn í viðbragðsstöðu og gerir henni kleift að bregðast hratt við ef upp koma frávik.
Vaðölduver er mikilvægt skref í orkuskiptum Íslendinga og kerfisbundin stýring áhættu stuðlar að því að þetta flókna verkefni gangi eins hnökralaust fyrir sig og mögulegt er.
Mynd: landsvirkjun.is

.jpg)













