Komin er út skýrsla starfshóps sérfræðinga sem ríkisstjórnin skipaði til að rýna jarðhræringarnar á Reykjanesskaga á tímabilinu 25. október 2023 til 7. nóvember 2024. Skýrslan er 417 blaðsíður og fjallar í sérstökum kafla um áhættumat fyrir Grindavík og hlutverk ÖRUGG verkfræðistofu í þeirri vinnu.
Í kjölfar banaslyss við Vesturhóp 29 í janúar 2024 var haft samband við ÖRUGG verkfræðistofu um gerð faglegs áhættumats vegna jarðhræringanna. Þannig hefur ÖRUGG séð um reglulegt áhættumat fyrir þéttbýlið í Grindavíkurbæ frá mars 2024, fyrst fyrir almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og síðar fyrir Framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur eftir að lög nr. 40/2024 tóku gildi í júní sama ár. Verkefnið er fordæmalaust á íslenskan mælikvarða. Alls hafa verið gerð 38 áhættumöt fram til dagsins í dag.
Viðurkennd aðferðafræði
Eitt af meginatriðum 10. kafla skýrslunnar er sú niðurstaða að áhættumat ÖRUGG sé unnið samkvæmt alþjóðlega staðlinum ISO 31000:2018 Risk management, sem er sá staðall sem notaður er alþjóðlega við áhættustjórnun. Starfshópurinn telur í úttekt sinni að mat ÖRUGG byggi á viðurkenndri aðferðafræði og telur vinnubrögðin „vönduð og fagleg“.
Í áhættumati ÖRUGG er áhættustigi skipt í fimm flokka: Óásættanlegt, mjög hátt, hátt, miðlungs og lágt, þar sem horft er heildstætt á samspil hættuþátta, fólksfjölda og tegundar hópa, viðbragða, forvarna, innviða o.fl. Þannig er ekki einungis tekið mið af náttúruvá heldur einnig mótvægisaðgerðum, viðbragðsgetu og veikleikum innviða, og heildaráhrifa á samfélagið.
Faglegur greinarmunur á hættumati og áhættumati
Skýrslan fjallar um hugtök hættu og áhættu, sem á er grundvallarmunur. Áhættumatið lítur til áhættu sem tengist hættu eða vá, útsetningu fyrir hættu og varnarleysi samfélagsins og einstaklinga gagnvart hættum. Hættumatskort Veðurstofunnar greinir tegundir og umfang hættu en ólíkt áhættumati fjallar það EKKI um eftirfarandi þætti:
· áhrif og afleiðingar atburða
· samspil mismunandi hættuþátta
· líkur og afleiðingar í tilteknum sviðsmyndum
· virkni mótvægisaðgerða og samspil þeirra
· afstöðu til ásættanlegrar áhættu
Heildstætt áhættumat, eins og það sem ÖRUGG hefur unnið, er því nauðsynleg viðbót fyrir ákvarðanatöku viðbragðsaðila.
Starfshópurinn telur áhættumat í vá vera einkar mikilvæg gögn og að viðbragðsaðilar þurfi almennt að byggja ákvarðanir sínar á slíku mati, ekki einungis á hættumatskorti.
Áhættumat sem hornsteinn viðnámsþróttar
Í 7. kafla skýrslunnar er fjallað um heildstæða áhættustýringu sem grundvallaratriði í viðnámsþrótti samfélaga gagnvart náttúruhamförum og öðrum áföllum. Þar er lögð áhersla á að unnið sé eftir viðurkenndum alþjóðlegum aðferðum við áhættustýringu og að ferlið sé hringrásarkerfi þar sem hvert stig leiðir til hins næsta.
Öruggara samfélag
ÖRUGG verkfræðistofa heldur áfram að styðja við áhættustýringu vegna Grindavíkur og á Reykjanesi með skipulögðum og reglubundnum áhættumötum sem byggja á alþjóðlega viðurkenndum aðferðum.
Skýrslan undirstrikar mikilvægi þess að íslenskt samfélag búi yfir faglegri sér þekkingu á sviði áhættustjórnunar – sérþekkingu sem ÖRUGG hefur býr yfir og styður við öryggi, áhættustýrða ákvörðunartöku og viðnámsþrótt á Íslandi.

.jpg)













