Frakkastígur 1, hlaut í gær Hönnunarverðlaun Íslands 2026 í flokknum Staður ársins. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Grósku og voru þetta í þrettánda sinn sem þau eru veitt.
s.ap arkitektar eru aðalhönnuðir byggingarinnar, en ÖRUGG sá um brunahönnun verksins. Aðrir hönnuðir voru Lumex (raflagnir og lýsing), Hanna (burðarþol), Teknik (lagnir og loftræsing), Brekke Strand (hljóðhönnun).
Dómnefnd lagði áherslu á að verkefnið sýni á framsækinn hátt hvernig hringrásarhugsun geti orðið raunhæfur hluti af hefðbundnu byggingarferli. Í stað þess að velja form og útvega svo efni var hönnunarferlinu snúið við, byggingin tekur mið af þegar fyrirliggjandi efnisstraumum, þar á meðal endurnýttum vegriðum, gleri og grjóti úr eigin grunni, sem síðan fá nýtt hlutverk í klæðningu og ásýnd hússins.
Verkefnið er lýsandi dæmi um hvernig taka má á kolefnisspori og efnisnotkun í byggingariðnaði innan ramma gildandi reglugerða, þar á meðal krafna um bruna- og öryggishönnun, án þess að það komi niður á framkvæmdakostnaði eða fagurfræði.
Nánar má lesa um verkefnið og rökstuðning dómnefndar á vef Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs: Frakkastígur 1 er Staður ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands 2026
Mynd: Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

.jpg)













