ENGLISHEN
frettir

Heilbrigðari byggingar með vottuðum verkferlum

Allt of oft heyrum við fjallað um byggingar sem eru orðnar óheilnæmar og krefjast kostnaðarsamra endurbóta til að verða nothæfar á ný, með tilheyrandi skerðingu á starfsemi sem þar fer fram. Slík staða kemur gjarnan upp þegar upphaflegri hönnun eða eftirliti á framkvæmdatíma var ábótavant. Með umhverfisvottun bygginga er stuðlað að því að réttir verkferlar séu til staðar frá upphafi, með áherslu á að vernda heilsu notenda. Við hjá ÖRUGG verkfræðistofu aðstoðum viðskiptavini við Svans- og BREEAM vottanir þannig að rétt nálgun sé til staðar strax í upphafi.

Hlutverk okkar er að veita ráðgjöf sem leiðir verkefni í réttan farveg. Með því að leggja upp verkferla um heilnæmt efnisval, rakavarnir og loftgæði, búum við til umhverfi þar sem gæði eru innbyggð í framkvæmdina. Þetta á jafnt við um nýbyggingar sem og endurbætur á eldra húsnæði.

Hagnýtir kostir umhverfisvottanna bygginga:

  • Fyrirbyggjandi  nálgun: Við hönnum ferlana þannig að komið sé í veg fyrir að heilsuspillandi efni séu notuð í byggingunni og að komið sé í veg fyrir rakavandamál. Þetta er besta vörnin gegn heilsuspillandi innivist.
  • Virðisaukning fasteigna: Vottaðar byggingar og endurbætur eru verðmætari eignir. Þær eru eftirsóttari af leigutökum og kaupendum sem gera kröfur um gæði.
  • Græn fjármögnun: Með umhverfisvottunum opnast dyr að betri lánskjörum og grænni fjármögnun hjá lánastofnunum.
  • Lægri rekstrarkostnaður: Bestun á orkunýtingu lækkar orkukostnað og endingarbetri efni kalla á minna viðhald.

LCA-greining er nú skylda: Frá og með 1. september2025 varð lífsferilsgreining (LCA) lögbundin krafa fyrir allar nýbyggingar. Við aðstoðum viðskiptavini við að mæta þessari kröfu á skilvirkan og auðveldan hátt.

Við hjá ÖRUGG leggjum okkur fram við að gera flóknar kröfur einfaldar fyrir viðskiptavini okkar og vinnum saman að því verkefnið standist ekki bara kröfur dagsins í dag, heldur sé jafnframt verðmæt og heilsusamleg fjárfesting til framtíðar.

Myndin er af Silfursmára 12 - Í svansvottunarferli hjá ÖRUGG verkfræðistofu og Klasa - arkitektar eru Batteríið.