ENGLISHEN
frettir

ÖRUGG söngvakeppni

Söngvakeppnin 2022 er nú haldin með pompi og prakt en að mörgu er að huga við útfærslu slíkra atburða. ÖRUGG verkfræðistofa sá um útfærslu viðbragðsáætlunar vegna keppninnar ásamt áhættumati.


Eftir langa bið er nú loksins hægt að halda söngvakeppni fyrir fullum sal áhorfenda. Öllu hefur verið tjaldað til, þannig að atburðurinn verði sem glæsilegastur. Haldnar hafa verið tvær undankeppnir og úrslitakeppni verður 12. mars. Keppnin er haldin í kvikmyndaveri Rvk Studios í Gufunesi, sem hannað er fyrir margvíslega atburði.


Miklum fólksfjölda fylgir ýmis hætta, sem mikilvægt er að greina og meðhöndla með réttum hætti. Vegna sérhæfingar í öryggi á atburðum var ÖRUGG verkfræðistofa fengin til að greina áhættu og gera útreikninga á rýmingu og brunavörnum, með sérhæfðum líkönum. Rýmingarútreikningar sýndu fram á öruggt fyrirkomulag flóttaleiða, fyrirkomulag stólaniðurröðunar o.fl.

ÖRUGG gerði viðbragðsáætlun sem tekur tillit til mismunandi hættu og samhæfðra hlutverka lykilaðila: RÚV og Live Production.

Þrívítt líkan af kvikmyndaverinu

Rýmingarlíkan fyrir greiningu flóttaleiða