ÖRUGG valið til að kynna rannsóknir á SRA Nordic 2026
Alþjóðlega ráðstefnan á vegum SRA-Europe Nordic Chapter: Risk analysis in the Nordic area in a time of transition, var haldin í Háskóla Íslands 1.-2. október 2026. Hún var á vegum Society for Risk Analysis (SRA), stærstu samtaka heims á sviði áhættugreiningar. Á ráðstefnunni komu saman vísindafólk og sérfræðingar frá öllum heimshornum til að ræða nýjustu rannsóknir og aðferðir í áhættugreiningu, áhættustjórnun og samfélagsöryggi.
Starfsfólk ÖRUGG verkfræðistofu voru valin til að kynna rannsóknir á ráðstefnunni. Þetta er viðurkenning á því rannsóknar- og þróunarstarfi sem unnið er hjá ÖRUGG og á því að íslenskar rannsóknir á sviði áhættuverkfræði eiga erindi á alþjóðlegan vettvang.
Erindi Öddu um börn í endurreisn
Adda Þóreyjardóttir Smáradóttir, MSc í hamfarastjórnun hjá ÖRUGG, kynnti rannsóknina „Children as a risk parameter: psychosocial consequence, rights as constraint, and continuity in recovery assessment“,sem fjallar um börn í endurreisn Grindavíkur. Börn eru venjulega meðhöndluð sem velferðarmál eftir náttúruvá en Adda færði rök fyrir því að þau ættu að vera áhættubreyta í sjálfu áhættumatinu.
Að mati hennar þarf að greina sálfélagsleg áhrif, réttindi barna sem raunverulegar skorður á ákvarðanir og samspil váhrifa, berskjöldunar og viðbragðs með sama hætti og aðra þætti áhættunnar. Þegar þessa þætti vantar í matið er hætta á að ákvarðanir um búsetu, endurreisn og þjónustu séu teknar án þess að afleiðingar fyrir börn séu metnar. Með því að innleiða þessa þætti inn í áhættumatið má stuðla að áhættumati sem endurspeglar nánar raunverulega áhættu.
Viðbrögðin við umfjöllunarefninu voru jákvæð og vöktu meðal annars umræðu um hvernig mætti samtímis innleiða börn inn í ferlið sjálft og auka rödd þeirra.
Erindi Böðvars um nýjar aðferðir í þjóðaráhættumati
Böðvar Tómasson, framkvæmdastjóri og stofnandi ÖRUGG, flutti erindið „From Events to Functions: A Bottom-up Societal Continuity forNational Safety“, sem er hluti af doktorsrannsóknum Böðvars. Þar er lagt til að þjóðaráhættumat byggi á samfelldri starfsemi lífsnauðsynlegrar samfélagsstarfsemi, með áherslu á lágmarks þjónustustig, þolmörk röskunar og endurheimtartíma, í stað þess að taka einstaka atburði sem upphafspunkt.
Umræðan um áfallaþol þjóða hefur verið fyrirferðarmikil undanfarin ár, hér á landi sem annars staðar í Evrópu, en hana hefur hingað til vantað praktíska nálgun, þ.e. aðferð til að meta áfallaþolið með mælanlegum stærðum og útfæra það í áætlanir sem stofnanir geta unnið eftir. Hefðbundin þjóðaráhættumöt lýsa atburðum, eldgosi, farsótt, netárás o.s.frv. og raða þeim upp eftir líkum og afleiðingum. Þau svara hins vegar ekki þeirri spurningu sem mestu skiptir þegar áfall verður: Hvaða starfsemi verður samfélagið að halda gangandi, með hvaða þjónustustigi og hversu lengi má hún liggja niðri?
Aðferðin var sýnd með dæmi frá eldsumbrotunum á Reykjanesi, þar sem röskun á einni starfsemi hefur bein áhrif á búsetuskilyrði heils landsvæðis. Sama aðferðafræði liggur til grundvallar ráðgjöf ÖRUGG um rekstrarsamfellu og áfallaþol fyrir stofnanir og eigendur mikilvægra innviða.
Pallborðsumræður um öryggismál
Bæði Adda og Böðvar tóku þátt í pallborðsumræðum um öryggismál föstudaginn 2. október, undir yfirskriftinni „From emergency toprecedent: what does Grindavík oblige us to change, and what do other island societies already know?“. Þar ræddu þau við innlenda og erlenda sérfsræðinga um það hvað Grindavík kallar á að við breytum og hvað önnur eyjasamfélög hafa þegar lært. Þátttaka þeirra beggja sýnir breidd þeirrar sérfræðiþekkingar sem ÖRUGG býr yfir.
Við hjá ÖRUGG þökkum skipuleggjendum fyrir vel heppnaða ráðstefnu og öllum sem tóku þátt í umræðunni. Við hlökkum til að halda áfram að leggja okkar af mörkum til alþjóðlegrar umræðu um áhættu og samfélagsöryggi.

.jpg)













