ENGLISHEN
frettir

Öryggi fyrir Landhelgisgæslu

Öryggi er lykil atriði í starfsemi Landhelgisgæslu Íslands. Nýtt flugskýli og starfsmannaaðstaða þurfa því að uppfylla ítrustu kröfur, en um leið vera aðlöguð byggingum og rekstri. Nýtt flugskýli ásamt tengibyggingu verður um 2.800 fermetrar, en eldra flugskýli er um 1600 fermetrar. Burðarvirki flugskýlisins verður úr límtrésbitum en burðarvirki skrifstofuhluta flugskýlis og tengibyggingar verður úr krosslímdum timbureiningum (CLT). Til að tryggja öryggið var ÖRUGG verkfræðistofa fengin til að skilgreina nauðsynlegar brunavarnir og gera viðeigandi útreikninga.

Gerðir voru sérstakir útreikningar á brunaþróun og reykflæði í flugskýli til að meta reyklosunarþörf og nauðsynlegan tíma til aðgerða áður en aðstæður til björgunar verði erfiðar. Einnig var metin útfærsla slökkvikerfa. sem þurfa að vera sérhæfð fyrir flugskýli.

ÖRUGG hefur mikla sérþekkingu á brunatæknilegum útreikningum, sem nauðsynlegir eru til að meta öryggi fólks, eigna og reksturs. Slíkir útreikningar nýtast einnig til að finna hagkvæmustu lausnir brunavarna og sem besta nýtingu fjármuna.

Arkitektar verkefnisins eru bj.snæ arkitektar.