ENGLISHEN
frettir

Öryggið í fyrirrúmi á tónleikum Laufeyjar

ÖRUGG verkfræðistofa var með í teyminu sem sá um skipulag tónleikanna og að hanna ramma utan um öryggi gesta.

Það var slegið mætingarmet í Kórnum þegar Laufey Lín töfraði áhorfendur upp úr skónum. Tónleikarnir fóru fram 14. og 15. mars og voru stærstu sitjandi tónleikar, sem haldnir hafa verið á Íslandi.

Sérfræðingar ÖRUGG sáu um víðtæka hönnun og ráðgjöf er varðar brunavarnir og öryggi, þar á meðal:

  • Hönnun rýmingar: Skipulagning flóttaleiða til að tryggja greiða og örugga rýmingu miðað við fjölda gesta.
  • Öryggismyndir: Gerð ítarlegra öryggis- og rýmingarmynda sem sýna notkun svæða og öryggisbúnaðar og útfærslu flóttaleiða.
  • Stýring viðbragðsmála: Samhæfing og ráðgjöf varðandi viðbrögð ef upp kemur neyðarástand.

Stórir viðburðir krefjast nákvæmrar verkfræðilegrar nálgunar til að tryggja að allir komist heilir heim. Við óskum Laufeyju og hennar teymi til hamingju með frábæra tónleika! Sena Live, HK, Kópavogsbær og allir hlutaðeigandi eiga hrós skilið fyrir alla umgjörð og heildarskipulag.

Fullur salur á tónleikum Laufeyjar í Kórnum