ENGLISHEN
frettir

Öryggið tryggt á tónlistarhátíðinni Bergmál á Þingvöllum

ÖRUGG verkfræðistofa tók að sér umfangsmikið öryggisverkefni í tengslum við stórtónleika Kaleo á Þingvöllum, einn stærsta tónlistarviðburð ársins á Íslandi. Böðvar Tómasson, framkvæmdastjóri ÖRUGG, átti sæti í öryggisráði viðburðarins þar sem fulltrúar Lögreglunnar á Suðurlandi, skipuleggjenda, Þjóðgarðsins á Þingvöllum, öryggisgæslu, umferðardeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Brunavarna Árnessýslu, Sérsveitar ríkislögreglustjóra, Heilbrigðisstofnunar Suðurlands o.fl. komu saman til að tryggja samræmda nálgun á öllum þáttum öryggismála.

Tónleikarnir tókust í alla staði vonum framar og var almennt hrósað fyrir hve vel skipulagðir þeir voru. Þegar allt að 20.000 mannskoma saman á friðlýstu náttúruverndarsvæði krefst það vandaðs undirbúnings á öllum stigum, allt frá rýmingarútreikningum og fólksfjöldagreiningu, til samhæfingar allra viðbragðsaðila. Markmiðið náðist fyllilega, en gestir gátu notið þessa einstaka viðburðar á öruggan og afslappaðan hátt í stórbrotinni náttúru og í góðu veðri.

Heildstæð öryggisáætlun og áhættugreining

Að skapa trausta öryggisumgjörð á Þingvöllum krafðist sérstakrar nálgunar vegna náttúruverndar og þeirrar áskorunar sem fylgdi því að halda stórviðburð á þessum einstaka stað, fjarri þéttbýli.

Aðkoma ÖRUGG fólst í hönnun öryggis, sem náði yfir nokkra lykilþætti:

  • Öryggisáætlun: Gerð ítarlegrar öryggisáætlunar sem náði yfir alla þætti öryggis viðburðarins og umgjörð á tónleikasvæðinu, frá komu gesta og þar til þeir yfirgáfu svæðið aftur.
  • Áhættugreining: Fariðvar yfir alla mögulega áhættuþætti, er varðaði fjölda fólks, veðuraðstæður og landfræðileg atriði Þingvalla, til að fyrirbyggja hættu og tryggja að hægt væri að bregðast við ófyrirséðum atvikum.
  • Viðbragðsáætlanir: Gerðarvoru nákvæmar viðbragðsáætlanir fyrir allar sviðsmyndir, í nánu samráði við þjóðgarðinn og viðbragðsaðila.

Rýmingarútreikningar stóðust prófið

ÖRUGG framkvæmdi rýmingarútreikninga sem lögðu grunn að öllum rýmingaráætlunum viðburðarins. Útreikningarnir byggðu á sérhæfðum líkönum sem mátu flæði fólksfjöldans um flóttaleiðir við mismunandi þéttleika og þann tíma sem þurfti til að tæma einstaka svæði og svæðið allt.

Reynsla og aðferðafræði

ÖRUGG byggir á yfir 20 ára reynslu af greiningu, stjórnun og skipulagi fólksfjöldaöryggis á stórviðburðum á Íslandi.

„Við hjá ÖRUGG lögðum áherslu á að tryggja öryggi gesta án þess að skerða þá upplifun sem Þingvellir bjóða upp á,“ segir Böðvar Tómassonum verkefnið. „Það er mikil ábyrgð fólgin í því að halda tónleika af þessari stærðargráðu á svo mikilvægum stað, og vandaður undirbúningur var lykillinn að þessum frábæra árangri.“

Tónleikar Kaleo á Þingvöllum staðfestu enn og aftur stöðu ÖRUGG verkfræðistofu sem leiðandi ráðgjafa á sviði fólksfjöldaöryggis og viðbragðsmála á Íslandi.