ENGLISHEN

Sérfræðingur í brunahönnun

ÖRUGG verkfræðistofa leitar eftir sérfræðingi í brunahönnun og einstaklingum sem hafa tæknilegan bakgrunn og vilja bæta við sig þekkingu í brunahönnun og brunaöryggi. Hér er um að ræða frábært tækifæri til að vinna með reyndustu sérfræðingum landsins í brunamálum og að öðlast frekari sértækri þjálfun.

Helstu verkefni:

  • Brunahönnun bygginga og ráðgjöf
  • Útreikningar á brunaþróun
  • Hönnun flóttaleiða og greining á rýmingu
  • Útttektir á byggingum
  • Rýmingaræfingar og viðbragðsmál
  • Deilihönnun brunavarna og rýni á teikningum
  • Brunatæknileg virkni tæknikerfa

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Menntun á sviði brunaverkfræði, verkfræði eða tæknifræði sem nýtist í þessu starfi ásamt miklum áhuga á brunaöryggi
  • Starfsreynsla á sviði mannvirkjagerðar er mikill kostur
  • Góð færni í rituðu og töluðu máli, á íslensku og ensku er mikilvægt
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði, vilji til að læra nýja hluti og þróast sem einstaklingur

Fríðindi:

  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Fjölskylduvænn vinnustaður
  • Möguleiki að vinna frá skrifstofu eða í fjarvinnu
  • Góð tækifæri til framþróunar í starfi
Hjá ÖRUGG verkfræðistofu starfa um 16 manns við bruna- og öryggishönnun, BIM stjórnun, vindgreiningar og umhverfis- og vinnuvernd. ÖRUGG verkfræðistofa er til húsa í Kringlunni 7 í Reykjavík – Húsi verslunarinnar.

Ef starfið heillar þig og þú vilt koma til liðs við ÖRUGG verkfræðistofu skaltu ekki hika við að sækja um. Umsókn og ferilskrá, auk kynningarbréfs um umsækjanda berist ÖRUGG verkfræðistofu. Við tökum vel á móti öllum umsóknum, sem verður svarað og þær meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.

Frekari upplýsingar um störfin má nálgast hjá Böðvari Tómassyni,  bodvar@oruggverk.is

Deila á:
Svæði:

Ísland

Tegund:

Fastráðning

Starfshlutfall:

Fullt starf

Staðsetning:

Landið allt

Umsóknarfrestur:

Opinn umsóknartími

Höfuðstöðvar:

KRINGLAN 7, REYKJAVIK