ENGLISHEN

Rýmingar- og viðbragðsæfing

ÖRUGG Verkfræðistofa er leiðandi í öryggismálum á Íslandi. Stofan leggur áherslu á skilvirk námskeið, sem byggjast á langri reynslu starfsfólks í kennslu og miðlun þekkingar á öllum sviðum öryggismála, brunavarna og vinnuverndar.

4.9 Stjörnur
75+ nemendur hafa lokið kennslu
Þú munt læra

Í fræðslunni fyrir Rýmingar- og viðbragðsæfinguer farið yfir:

  • Helstu brunavarnir í mannvirkinu og hvernig þær virka
  •  
  • Viðbragð við hættu sem getur skapast
  •  
  • Rýmingarferli – hvernig rýming virkar
  •  
  • Hlutverk starfsfólks við rýmingu
  •  
  • Hlutverk viðbragðsaðila og aðkomu þeirra á staðinn
  •  
  • Um mikilvægi þess að hafa skilgreinda söfnunarstaði og hvaða tilgangi þeir þjóna

Megin svið
Neyðaráætlanir
Brunavarnir
Vinnuvernd
Nánari upplýsingar

Þáttakendur fá yfirsýn yfir megin þætti rýmingar- og viðbragðsmála fyrirtækisins og þjálfun í viðbragðsferlum.

Hægt er að óska eftir verðtilboði með því að senda tölvupóst á orugg@oruggverk.is

Viðurkenning
Nei
Form námskeiðs
Á staðnum
Sveigjanlegur tími
Nei
Lengd
2 klst
Erfiðleikastig
Byrjandi
Tungumál
Íslenska, enska, pólska
Kostnaður
Eftir umfangi
Kennarar
Umsjónarfólk námskeiðsins
Instructors
Böðvar Tómasson
Reykjavík

Sérfræðingur í brunahönnun og áhættugreiningum

Kristín Rós Hlynsdóttir
Reykjavík

Viðbragðsmál, neyðarstjórnun

Adda Smáradóttir
Reykjavík

Neyðarstjórnun, áhættumat, viðbragðsmál

about the course

Námsefnið er aðlagað að hverjum og einum vinnustað og byggingu. Til staðar þarf að vera viðbragðs- og rýmingaráætlun, en ÖRUGG verkfræðistofa getur einnig aðstoðað vinnustaði við að gera slíka áætlun áður en námskeiðið hefst.

Námskeiðið og rýmingaræfingin tekur um 2 klukkustundir þar sem fyrst er farið yfir helstu brunavarnir í mannvirkinu, en í framhaldinu er farið yfir viðbragðs- og rýmingaráætlun vinnustaðarins og helstu hlutverk starfsfólks og viðbragðsaðila. Í framhaldi af kennsluhluta er framkvæmd rýmingaræfing á vinnustaðnum þar sem allt starfsfólk tekur þátt og fær tækifæri á að ræða rýminguna, helstu hættur og viðbrögð. 

Umsagnir nemenda
75+ hafa þegar tekið námskeið ÖRUGG Verkfræðistofu
Aleksander
Póland

"Námskeiðið í vinnuvernd var mjög fræðandi og gagnlegt. Fyrirlestrarnir voru skýrir og hagnýtir, og ég fékk góða innsýn í mikilvægi öryggis á vinnustað. Mæli eindregið með því fyrir alla sem vilja bæta þekkingu sína á þessu sviði."

Mark
Úkraína

"Námskeiðið var bæði vandað og vel skipulagt. Það veitti mér dýpri skilning á öryggismálum og verkleg ráð til að tryggja betra vinnuumhverfi. Ég mæli með því fyrir alla sem bera ábyrgð á vinnuvernd."

Sveinn
Hafnarfjörður

"Námskeiðið var mjög gagnlegt og fræðandi. Efnið var skýrt útskýrt og auðvelt að tileinka sér. Ég tel mig nú betur í stakk búinn til að stuðla að öruggara vinnuumhverfi. Mæli með því fyrir alla starfsmenntun."

Algengar spurningar (FAQ):
Q :
Hvað er ÖRUGG verkfræðistofa?

ÖRUGG verkfræðistofa er leiðandi verkfræðistofa í öryggismálum á Íslandi. Stofan hefur á að skipa um 20 sérfræðingum á sviði öryggis, vinnuverndar, brunavarna, umhverfismála, vingreina og upplýsingalíkana byggingarhönnunar (BIM).

Q :
Er hægt að fá styrki frá stéttarfélögum?

Stéttarfélög bjóða upp á styrki fyrir flest námskeið ÖRUGG. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi hvað er í boði þegar kemur að námskeiðum.

Q :
Hvaðan koma kennarar?

Kennarar eru starfsfólk ÖRUGG verkfræðistofu, sem hafa langa reynslu af hönnun og ráðgjöf á viðkomandi sviði auk reynslu í kennslu og námskeiðshaldi.

Q :
Af hverju námskeið hjá ÖRUGG?

Námskeið ÖRUGG eru byggð upp með það að markmiði að þau nýtist sem best fyrir nemendann. Starfsólk miðlar af mikilli reynslu, sem nýtist beint í miðlun þekkingar.  

Q :
What is ÖRUGG Consulting Engineering?

Orugg community, the new community is geared towards more general discussion about subjects and careers, and anything else you're passionate about. You can connect with other learners outside individual courses without losing the connection after the course has finished.

Ertu með fleiri spurningar ?
Hafðu samband