ENGLISHEN

Nýtt framleiðsluhúsnæði Ölgerðarinnar

ÖRUGG verkfræðistofa sá bæði um brunahönnun fyrir bygginguna, en einnig öryggishönnun vegna öryggis fólks. Brunahönnun og viðeigandi útreikningar taka til verksmiðjubyggingarinnar í heild, til að besta brunavarnir m.t.t. starfsemi Ölgerðarinnar.

Um er að ræða 1.700 fermetra límtrés byggingu, en fjárfestingarkostnaður er vel á annan milljarð króna.

Arkís eru arkitektar viðbyggingarinnar, en lagna-, rafmagns- og burðarþolshönnun er á höndum Verkís.

Beka ehf. hefur séð um verkefnastjórnun.